Jæja fólk mitt gott.. þá er komið að tímamótum. Við mamma ákváðum að fá okkur nýja heimasíðu og breyta aðeins til svo að barnaland varð fyrir valinu.
www.dagbjortros.barnaland.is
Eitthvað svona idiot-proof, eins og sagt er á góðri íslensku, sem mamma getur bara fiktað og breytt sjálf. Við ætlum að sjálfsögðu að reyna að setja allar myndirnar inn á nýju síðuna svo að það týnist ekki neitt en það tekur langan tíma og það er bannað að vera óþolinmóður yfir því.. enda svosem eruði flest búin að skoða þær allar svo að við ætlum bara að vera enn duglegri núna að setja inn nýjar myndir (við skuldum nokkrar
. Endilega verið nú dugleg að skoða hjá okkur og kvitta og þá verðum við enn duglegri að setja inn myndir
Lykilorðið er það sama og á þessari síðu, ef þið vitið það ekki þá er bara að senda mömmu póst á sigrun82@gmail.com og hún svarar ykkur um hæl eins og sagt er
Kveðja Dagbjört Rós og mútta tútta
Posted in Óflokkað | No Comments »
Jæja nú er ég komin í sumarfrí hjá nunnunum og verð í fríi núna í tvær vikur og örugglega alveg þrjár vegna þess að við erum að fara í sumarbústað í Tjarnargerði fyrstu vikuna í ágúst og þá þarf ég ekkert að vera í pössun. Ég verð bara að leika við ömmu og afa ef að mamma og pabbi þurfa að vinna eitthvað
Annars er bara allt gott að frétta af okkur. Ég stækka og dafna vel eins og alltaf. Ég er orðin þvílíkt flink að labba enda alltaf að æfa mig
Ég og mamma erum rosalega duglegar að fara í sund og ég tala nú ekki um þegar veðrið er eins og í dag og ég er rosalega dugleg í sundi. Ég kann alveg að synda alein með kútana og mér er sko alveg sama þó að mamma hendi mér í kaf
en það er samt alls ekki gott að fá vatn í nefið!
Mamma var að bæta upp gamlar syndir og setti inn myndir síðan í apríl sem hún átti alltaf eftir að gera og svo líka fleiri júnímyndir, endilega kíkið á góssið og munið líka að kvitta því okkur finnst svo gaman að vita hverjir kíkja á okkur
Kveðja Dagbjört Rós megakrútt
Posted in Óflokkað | 2 Comments »
Hann pabbi var voðalega rómantískur á afmælisdaginn hennar mömmu og bað hana að giftast sér, ég fékk að hjálpa honum alveg helling og mér fannst það sko ekki leiðinlegt. Hann keypti hvíta samfellu á mig og skrifaði á hana “Mamma viltu giftast pabba?” svo vakti hann mig um morguninn á afmælisdaginn hennar mömmu, klæddi mig í samfelluna og við fórum saman að vekja mömmu. Ég fékk meira að segja að halda á hringnum og allt
Pabbi var meira að segja búinn að fara til hans afa og biðja um hönd mömmu og hann sem betur fer var nú ekkert mótfallinn því. Mamma var rosa hissa en svakalega glöð og auðvitað sagði hún JÁ
Svo að 4. júlí á næsta ári ætla gömlu að láta pússa sig saman og ég hlakka ekkert smá til að vera brúðarmey
hehe
Ég er núna búin að vera 2 vikur hjá nunnunum og mér finnst þetta bara alveg geggjað, nóg að gera og leika allan daginn svo að ég er alltaf voða sibbin þegar ég kem heim. Svo fara þær í frí eftir eina viku og ég má byrja 4. ágúst en þá ætlum við að vera í sumarbústað í Tjarnargerði til 8. ágúst og svo förum við austur á hreindýraveiðar með afa Jóhannesi og ömmu Siggu og auðvitað Eysteini litla frænda sem eru að koma í heimsókn alla leið frá Kína
Það eru komnar myndir af bónorðinu í albúmið mitt, ég og pabbi stóðum okkur svo vel að við bara urðum að leyfa ykkur að sjá.
Kveðja Dagbjört Rós

Posted in Óflokkað | 3 Comments »
Já í dag er ár síðan ég fæddist og á þessum tíma hefur margt gerst. Pabbi fór að vinna hjá OMX og vinnur þar enn, mamma er útskrifuð úr Samfélags- og hagþróunarfræði og er byrjuð að vinna hjá Rannsóknar- og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri. Ég er rosalega dugleg og byrjaði að labba fyrir rúmum mánuði eins og flest ykkar vita, ég kann að segja mamma, pabbi, hæ, kisi, datt og takk, ég er komin með 6 tennur og fékk heilar 5 bara á tveim mánuðum
ég er búin að ferðast heilmikið og fór til Færeyja rétt 2ja mánaða gömul með mömmu, ömmu Rósu og löngu ömmu Mæju og svo fórum ég og mamma til Lúxemborgar, Frakklands, Þýskalands og Belgíu og svo hef ég líka komið víða við á Íslandi en það má þó alltaf gera betur
Afmælisveislan mín var síðasta laugardag en ég og mamma bökuðum samt súkkulaðiköku í morgun svona ef einhver skyldi kíkja í heimsókn svo þeir sem vilja eru velkomnir
Við ákváðum að láta fylgja hérna myndir af mér sem Svabbi tók af mér í maí, þær eru svo rosalega flottar og þið getið svo séð þær allar í albúminu mínu
Kveðja Dagbjört Rós 1 árs bjútíbolla



Posted in Óflokkað | 3 Comments »
Jæja þá er þessi langa helgi að taka enda. Mamma útskrifaðist á laugardaginn úr háskólanum og er því núna Samfélags- og hagþróunarfræðingur.. ekki amalegur titill það og við pabbi erum voða stolt af henni
Þar sem ég verð eins árs á laugardaginn næsta ákváðu ma og pa bara að slá saman í eina stóra veislu og við fengum svona líka rosa flott veður svo að það var hægt að sitja á pallinum í Víkurgilinu og svona. Ég fékk rosa marga pakka og þá aðallega dót sem er alveg geggjað því ég á eiginlega alveg nóg af fötum og mamma fékk líka rosa marga pakka.. við vorum alveg hæst ánægðar með daginn sem var vel heppnaður í alla staði og við þökkum kærlega fyrir okkur
Við fjölskyldan fengum okkur smá göngutúr í dag á þjóðhátíðardeginum og höfðum það annars bara gott og vonum að þið hafið haft það gott líka og óskum ykkur bara til hamingju með daginn
PS: Það eru komnar nýjar myndir og koma fleiri í vikunni

Verið að vígja nýju kerruna sem amma og afi í Víkurgilinu og amma og afi í Kína gáfu mér í 1 árs afmælisgjöf, takk æðislega fyrir hún er alveg geggjuð og er sko eflaust eftir að koma sér ansi vel ansi oft
Kveðja Dagbjört Rós og co.
Posted in Óflokkað | 1 Comment »
Núna er rúm vika síðan mútta gerði herbergið mitt svaka fínt og ég er búin að sofa þar alveg sjálf síðan þá
Er yfirleitt búin að sofa eins og engill, kannski brölti svona smá og mamma gefur mér snudduna einu sinni.. ég svaf sko til 8 einn daginn og 9 annan dag en annars þykir mér voða gott að fá að skríða uppí til mömmu og pabba.
Ég er núna lítill lasarus, ég og mamma fórum út á Svalbó í gær og ég bara blossaði upp í hita og er búin að vera heima í allan dag með tæplega 40 stiga hita, mamma ákvað svo að það væri best að láta kíkja á mig seinni partinn þar sem hitinn var ekkert að lækka svo að gömlu brunuðu með mig upp eftir og auðvitað þurfti ég að vera komin með eyrnabólgu í hægra eyrað mitt… allt er þegar þrennt er svo að vonandi kemur þetta aldrei aftur
Svo er ég komin með 6 tönnina mína
Kveðja Dagbjört Rós
Posted in Óflokkað | 3 Comments »
Það var alveg æðislegt veður í dag og við fjölskyldan notuðum tækifærið og þrifum pallinn okkar, flokkuðum ársbyrgðir af dósum þar sem maður þarf núna að flokka sjálfur, hentum rusli, tókum til í geymslunni og þrifum alla glugga svo að núna loksins sjáum við almennilega ut
Þegar þessu öllu var lokið fórum við ísrúnt og vorum að keyra Eyjafjarðarhringinn þegar við sáum litla sæta hvolpa hlaupa þarna um fyrir framan eitthvað hús. Við fórum bara og spurðum hvort við mættum ekki skoða og að sjálfsögðu var það minsta málið… okkur fannst þeir sko algjört æði og mamma vildi helst bara taka einn með sér heim. Þeir voru blanda af Dalmatíu og Labrador og voru alveg rosalega fallegir, pabba til mikillar gleði var mamma alveg veik svo að kannski verður auðveldara fyrir hann að sannfæra hana um að fá okkur hund

Svo fórum við grill til ömmu og afa í Víkurgilið og fengum agalega gott að borða og ég var voða dugleg og borðaði helling af kjöti og fékk að gera alveg sjálf. Það eru komnar fjórar tönnslur svo að ég verð bara fulltennt áður en ég veit af haha
Nýjar myndir í albúminu mínu og reynið nú að vera aðeins duglegri að kvitta…
Kveðja Dagbjört Rós
Posted in Óflokkað | No Comments »
Jæja það er bara allt að gerast.. það er farið að sjást vel í tönnsluna mína en það bóla enn ekkert á næstu… tannholdið samt vel bólgið svo að það hlýtur að koma að þessu
Dóra og co. gáfu mér tannbursta og tannkrem í tanngjöf sem er eftir að koma sér mjög vel í baráttunni við Karíus og Baltus sem koma þó vonandi ekki strax í heimsókn hehe. Mamma er loksin alveg að verða búin í skólanum, síðasta prófið á þriðjudaginn, svo förum við suður á miðvikudaginn og til Guddu og Veigars á fimmtudaginn
Það er rosa gott veður þarna hjá þeim í Lúxemborg, Gudda var bara í sólbaði og það verður sko ekki leiðnlegt þegar ég og Veigar getum leikið okkur í garðinum og mömmurnar sólað sig á meðan. Svo ætlum við að fara til Frakklands í Disneyland og við eigum eftir að brasa heilmikið og skemmta okkur, við erum orðnar rosalega spenntar
Ég sagði kisi á föstudaginn, það var kannski bara svona tilviljunarkennt en amma, Hrafn og Húni frændi voru sko staðráðin í því að ég hefði sagt það.. ég er allavega voðalega hrifin af honum kisa og það verður ekki leiðinlegt þegar ég gæludýr… Kíktum á e-ð slútt hjá ömmu Rósu í kirkjunni áðan og fengum pylsur og svona, rosa stuð. En jæja segjum þetta gott í bili…
Kveðja Dagbjört Rós
Posted in Óflokkað | 1 Comment »